FORSÍÐA   OKKAR FÓLK   STEFNAN   Á DÖFINNI   GREINAR   SKRIFSTOFA   MYNDIR   KYNNINGAREFNI  
 
 
(1) Sveinn   (2) Hrönn
 
(3) Ingibjörg   (4) Einar
 
(5) Gunnhildur   (6) Magnús
 
(7) Hrund
(8) Guðmundur
(9) Sigrún
(10) Björn
(11) Jónína
(12) Guðríður
  (13) Bergur
(14) Ingibjörg
(15) Ólafur
(16) Helga
(17) Helgi
(18) Jóhann
 
KOSNINGASKRIFSTOFA (kort)
KYNNINGAREFNI
     
     
     
     
 
 
 
Stefna Samfylkingarinnar á Akranesi
í bæjarmálum vorið 2010


Velferðarmál - Fjölskyldan

- Við ætlum að auka framlög til grunnþjónustu með því að breyta forgangsröðun og skila til baka hluta þess niðurskurðar sem orðinn er í stofnunum sem heyra undir Fjölskyldustofu, svo sem leik- og grunnskólum.

- Við ætlum að efla stoðþjónustu (s.s. sérkennsla, sálfræðiþjónusta, námsráðgjöf) leik- og grunnskóla.

- Við ætlum að styðja við bakið á framsæknu og kröftugu skólastarfi í leik og grunnskólum. Leita þarf leiða til að barnafjölskyldur sjái sér félags- og fjárhagslega hag í að setjast að í bænum.

- Við ætlum að viðhalda metnaðarfullu tónlistarnámi.

- Við ætlum að hlúa að fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga og vinna að forvörnum á skipulegan hátt.

- Við ætlum að efla enn frekar heimaþjónustu og heimahjúkrun.

- Við ætlum að leggja áherslu á að Akraneskaupstaður verði leiðandi sveitarfélag í þjónustu við fatlaða og aldraða með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.

Atvinnumál

- Við ætlum að leggja aukna áherslu á að hlúa að fyrirtækjum sem fyrir eru á Akranesi og laða að ný fyrirtæki í bæinn og stuðla þannig að fjölbreyttara atvinnulífi.

- Við viljum, með öllum tiltækum ráðum verja og styrkja þau fyrirtæki og stofnanir sem fyrir eru í bænum. Rekstur Sjúkrahússins þarf að treysta og að skilgreina sem hluta af öryggiskerfi landsins ef til náttúruvár kemur. Athuga þarf hvort ekki sé skynsamlegt að stofna til sameiginlegs framhaldsskóla á Vesturlandi með höfuðstöðvar á Akranesi.

- Við viljum auka eins og kostur er viðhald á fasteignum bæjarins og tryggja þannig atvinnu iðnaðarmanna í bæjarfélaginu. Nýta þarf þá breytingu á lögum að búið er að fella niður virðisaukaskatt á viðhaldsverkefnum.

- Við viljum kanna vandlega hvort möguleiki sé á aðkomu bæjarfélagsins að hálfkláruðum byggingum í bæjarfélaginu til að tryggja búsetu og atvinnu.

- Við viljum hvetja til virkrar samvinnu meðal fyrirtækja bæjarins um að versla í heimabyggð. Það mun verða gert með endurstofnun Markaðsráðs Akraness.

- Við ætlum að sýna frumkvæði að því að fá fleiri ríkisstofnanir í bæinn og styrkja þær sem fyrir eru.

- Við viljum efla nýsköpun og frumkvöðlastarf með því að virkja mannauðinn í samfélaginu. Auðvelda þarf áhugasömum aðilum að koma á fót nýjum fyrirtækjum. Fylgja þarf eftir samkomulagi um Faxaflóahafnir þar sem kveðið var á um hlutverk Akraneshafnar.

- Við viljum gera úttekt á minni iðnaði í bæjarfélaginu, fjölda fyrirtækja og starfssviði og leggja á ráðin um eflingu þessara fyrirtækja.

- Við ætlum að endurskoða samgöngumál innan og utan bæjarins í takt við þarfir bæjarbúa. Góðar almenningssamgöngur eru mikilvægur þáttur í nútíma samfélagi, þær eru hagkvæmar fyrir neytendur og mikilvægt framlag til umhverfisverndar.

Fjármál og stjórnsýsla

- Við ætlum að taka til í fjármálum bæjarins og sýna ábyrgð með vandaðri áætlanagerð og öruggri fjármálastjórn.

- Við viljum vinna að lækkun skulda bæjarsjóðs með því að lágmarka fjármagnskostnað og auka tekjur. Endurfjármagna þarf skuldir bæjarins með það fyrir augum að lækka vaxtabyrði og lengja í lánum.

- Við ætlum, í öllum störfum bæjarfélagsins og bæjarstjórnar, að viðhafa gagnsæja og heiðarlega stjórnsýslu. Grundvallaratriði er að fylgja settum reglum og tryggja jafnræði milli aðila í viðskiptum við bæjarfélagið.

- Við ætlum að viðhalda og efla fagleg vinnubrögð í viðskiptum bæjarins og gæta fyllstu hagkvæmni í innkaupum, hvort sem um er að ræða útboð eða verðkannanir.

- Við viljum auka tekjur í bæjarsjóð og losa um fjármuni með því að bjóða byggingalóðir á kostnaðarverði. Tengt því viljum við auka eftir föngum atvinnutækifæri og markaðssetja bæinn gagnvart fjölskyldum og fyrirtækjum.

- Við ætlum að endurskoða skipurit Akraneskaupstaðar til að auka lýðræði og valddreifingu og skýra verkaskiptingu. Það verður gert með fjölgun nefnda sem fjalla um tiltekna málaflokka líkt og gert er hjá sveitafélögum almennt.

- Við ætlum ávallt að forgangsraða verkefnum. Samfylkingin vill raða þeim í anda jafnaðarstefnunnar.Hún vill því verja velferðarkerfið í bænum, skólana, dvalarheimilið og aðra þá þætti sem styrkja samfélagsgerðina og treysta lífsskilyrði íbúanna.

- Við ætlum að halda virku sambandi við bæjarbúa með því að kanna reglulega skoðanir og viðhorf þeirra til hinna margvíslegu málefna bæjarfélagsins, með vefkönnunum eða öðrum hætti, og auðvelda aðgengi bæjarbúa að embættismönnum og kjörnum fulltrúum. Þá vill Samfylkingin stuðla að stofnun hverfaráða, þar sem íbúarnir geti tekið ákvarðanir um þau málefni sem varða þá sérstaklega. Slík hverfaráð fái ákvörðunarvald um ráðstöfun fjár sem þeim yrðu veitt á fjáhagsáætlun hverju sinni. Þá má einnig auka áhrif bæjarbúa með því að þeir geti sett ábendingar inn á heimasíðu bæjarins um það sem betur megi fara. Einnig gætu íbúafundir ákveðið forgangsröðun tiltekinna verkefna.

- Við ætlum að halda íbúaþing að hausti við undirbúning á fjárhagsáætlun bæjarins.

- Við viljum leggja áherslu á að unnið skuli ötullega að sameiningu sveitarfélaga í landinu, enda er það góð leið til að tryggja sjálfstæði sveitarfélaga, bæði faglega og fjárhagslega og þar með getuna til að auka þjónustu við íbúana.

Skipulagsmál

- Sjá þarf til þess að samþykktu skipulagi sé fylgt og enginn komist upp með að brjóta af sér eða hundsa tilmæli bæjaryfirvalda um úrbætur án þess að viðurlögum sé beitt.

- Draga verður úr formlegum áhrifum verktaka á ákvarðanir í skipulagsmálum.

- Vinna skal að því að ólíkur iðnaðar starfi ekki hlið við hlið, s.s. matvælafyrirtæki og vélaverkstæði.

- Mikilvægt er að taka til endurskoðunar Miðbæjarskipulagið og nýta sér í því skyni verðlaunatillögu er unnin var á síðasta kjörtímabili.

Umhverfismál

- Við viljum endurskoða Staðardagskrá 21 sem er umhverfisstefna bæjarins.

- Við viljum fylgja eftir framkvæmdum við Græna ásinn (tenging svæðanna milli Langasands og Garðalundar) sem boðaður var í stefnuskrá Samfylkingarinnar 2006. Þróa skal hugmyndina áfram miðað við nýjustu forsendur.

- Við viljum greina og forgangsraða viðhaldi gatna og göngustíga bæjarins. Gera þarf átak í lagfæringum á gömlum og slitnum götum og göngustígum, einkum þar sem steinsteypa er brotin eða illa slitin af umferð.

- Við viljum laga aðgengi að fjörunni í Krókalóninu með tilkomu nýrrar frárennslislagnar og hreinnar fjöru.

- Við ætlum að skipuleggja reglubundin þrif í bænum árið um kring. Bætt þrif bæta umgengni íbúanna.

- Við ætlum að setja upp fleiri ruslatunnur og gera átak í því að bæta umgengnishætti íbúanna.

- Við viljum embættismönnum bæjarins pólitískan stuðning við beitingu úrræða gegn umhverfisslóðum.

- Við viljum endurskoða áætlun um umhirðu og endurbætur á grænum svæðum í bænum og huga sérstaklega að svæðum í gamla bænum s.s. að Skrúðgarðinum og Merkurtúni.

Menningarmál

- Við viljum halda áfram að byggja upp Safnasvæðið að Görðum og koma því í fremstu röð eftirtektarverðra safna og sýninga á Íslandi Tryggja verður að rekstur svæðisins verði ávallt á forræði eigenda. Kynna skal Safnasvæðið sem áhugaverðan stað fyrir grunnskólana á suðvesturhorninu til að heimsækja að vetri til.

- Við viljum að fundin verði langtímalausn á varðveislu Kútters Sigurfara og hann gerður aðgengilegur bæjarbúum og gestum til framtíðar ásamt öðrum skipum á Safnasvæðinu. Í þessu skyni skal efna til hugmyndasamkeppni varðandi hönnun á húsnæði utan um skipin.

- Við viljum halda áfram að byggja upp Garðalund og gera hann að enn meira aðlaðandi útivistarparadís Skagamanna með aukinni afþreyingu fyrir gesti og gangandi og tengja hann við nýja skógræktarsvæðið í Klapparholti.

- Við viljum styrkja menningarlífið í bænum með því að tiltækt sé húsnæði fyrir listamenn, leikhópa og tónlistarfólk.

- Við viljum gera Vökudögum hærra undir höfði með því að efna til fleiri og fjölbreyttari menningarviðburða í bænum fyrir alla fjölskylduna t.d. með lagasamkeppni, uppsetningu leikþátta, barnadagskrá o.fl.

- Við viljum endurskoða fyrirkomulag Írskra daga í heild sinni með það að markmiði að kynna betur írska menningu og þjóðlíf fyrir fjölskyldufólki.

- Við viljum tengja starf Tónlistarskólans og annarra skóla betur við viðburði bæjarins og fá listafólk á Akranesi til að taka þátt í listviðburðum bæði á Vökudögum og Írskum dögum.

Markaðsmál

- Við ætlum að endurskilgreina og styrkja embætti markaðs- og atvinnufulltrúa með það fyrir augum að gera starfið skilvirkara og markvissara.

- Við viljum að unnið verði að því að haldnar séu reglulega sýningar þar sem starfsemi fyrirtækja á Akranesi er kynnt í því skyni að heimamenn geri sér betur grein fyrir fjölbreytni atvinnulífsins og til þess að landsmenn sæki í auknum mæli þjónustu til fyrirtækja á Akranesi. Akraneskaupstaður þarf að eiga frumkvæði að því að virkja og auka samskipti og samstarf við ferðaþjónustuaðila og aðra hagsmunaðila á Vesturlandi til að fjölga ferðamönnum á svæðinu.

- Við viljum vinna í samstarfi við nágrannasveitarfélög að skipulagningu styttri ferða um svæðið, t.d. dagsferða . Þessar ferðir myndu henta vel farþegum skemmtiferðaskipa. Hægt yrði að aka umhverfis Hvalfjörðinn og skoða þar markverða staði, fara á Akranes, skoða Safnasvæðið, Langasand, golfvöllinn o.s.frv. Þessar ferðir yrðu til að styrkja ferðaþjónustu á öllu svæðinu og mikilvægar til að byggja upp og kynna Akranes sem ferðaþjónustustað.

- Við viljum hefja markvissa kynningu á Akranesi sem sýninga- og ráðstefnustað. Nýta má mannvirki bæjarins undir stórsýningar eins og sjávarútvegssýningu.

- Við viljum kynna Safnasvæðið, Langasand, ýmsar gönguleiðir, fjörurnar á Akranesi, íþróttasvæðið, brimið í vestanáttinni, útvistarsvæðið í Innsta Vogi og Blautós sem er þekktur viðkomustaður farfugla. Eins þarf að kynna áhugaverðar gönguleiðir eins og t.d. Akrafjall, listaverkahringurinn og Innstavogsnesið
- Við ætlum að virkja heimasíðu bæjarins sem upplýsingaveitu fyrir ferðamenn og íbúa á Akranesi og sjá til þess að hún sé stöðugt uppfærð.

- Við ætlum að vinna að og viðhalda ímynd Akraness og því sem bærinn stendur fyrir. Spyrja þarf spurninga eins og: Hver erum við, hver er sérstaða okkar? Þessa ímynd þarf að kynna fyrir núverandi og framtíðar íbúum bæjarins og ferðamönnum.

- Við ætlum að markaðssetja bæinn sérstaklega sem fjölskyldu bæ og laða þannig að nýja íbúa.

- Við viljum markaðssetja bæinn skipulega sem vænlegan búsetustað fyrir starfsmenn á Grundartangasvæðinu sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Við viljum að leitað verði leiða til að lækka lóðaverð til einstaklinga. Kanna þarf hvort unnt sé að stofna eignarhaldsfélag um lóðir í eigu bæjarins. Slíkt eignarhaldsfélag gæti úthlutað lausum lóðum með samningum til umsækjenda.

- Við viljum virkja höfnina sem aðstöðu fyrir skemmtisiglingar t.d. sjóstangaveiði, skútusiglingar, hvalaskoðunarferðir og siglingakeppnir.

- Við viljum bjóða upp á ferðatilboð á Safnasvæðið að Görðum þannig að fólk sem kæmi í gegnum Hvalfjarðargöngin í heimsókn á Safnasvæðið, fengi gangamiða til baka frítt.
Við ætlum að gera Akranes að spennandi kosti fyrir hópeflisferðir og aðrar starfsmannaferðir.
 

vefstjóri / xs.is / facebook / vídeókynningar / kosningaskrifstofa