FORSÍÐA   OKKAR FÓLK   STEFNAN   Á DÖFINNI   GREINAR   SKRIFSTOFA   MYNDIR   KYNNINGAREFNI  
 
 
 
(1) Sveinn
(2) Hrönn
(3) Ingibjörg
(4) Einar
(5) Gunnhildur
(6) Magnús
(7) Hrund
(8) Guðmundur
(9) Sigrún
 

(10) Björn
(11) Jónína
(12) Guðríður
(13) Bergur
(14) Ingibjörg
(15) Ólafur
(16) Helga
(17) Helgi
(18) Jóhann

 
KOSNINGASKRIFSTOFA (kort)
KYNNINGAREFNI
     
     
     
     
 
 
 

6. sæti
Magnús Freyr Ólafsson


Magnús Freyr Ólafsson er 38 ára gamall Akurnesingur. Magnús á eina nýfermda dóttur og er í sambúð með Guðrúnu Öldu Elísdóttur sem á einn son. Magnús ólst upp á Akranesi, fluttist þaðan þegar hann hóf háskólanám en sneri aftur á æskuslóðirnar fyrir fjórum árum.

Ég er líffræðingur að mennt en lauk mastersprófi í fiskifræði við háskólann í Bergen og síðar MBA námi frá Háskóla Íslands. Í dag starfa ég sem öryggisstjóri hjá Elkem Ísland auk þess sem ég á og rek Farfuglaheimili Akraness.

Umhverfið, skipulags- og atvinnumál
Ég er mikill náttúruunnandi og umhverfismál eru mér því sérstaklega hugfólgin. Ég mun stuðla að því að mótuð verði umhverfisstefna Akraneskaupstaðar sem unnið verður eftir og hefur stórt vægi í allri skipulagsvinnu til framtíðar.

Sem aðili að uppbyggingu fyrirtækja og atvinnulífs á Akranesi hef ég orðið var við mikinn vanmátt og stefnuleysi bæjaryfirvalda í þeim efnum. Ég tel að við eigum vannýtt tækifæri á sviðum ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu, svo fátt eitt sé nefnt.

Nálægðin við borgina tækifæri
Við Akurnesingar eigum að líta á nálægð okkar við höfuðborgarsvæðið sem tækifæri fremur en ógn. Við þurfum að spyrja okkur hvaða þjónustu og vörur við getum boðið stærsta markaðssvæði landsins.

 

vefstjóri / xs.is / facebook / vídeókynningar / kosningaskrifstofa