3.
sæti
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Ingibjörg er 37 ára,
gift 3ja barna móðir, borinn og barnfæddur
Skagamaður. Maður hennar er Eggert Herbertsson.
Foreldrar mínir eru Valdimar Björgvinsson
og Jóhanna Jónsdóttir. Ég kláraði
viðskiptafræði frá Háskóla
Íslands 1997 og hef nú, samhliða vinnu, stundað
meistaranám í alþjóðaviðskiptum
og er langt komin með það nám.
Hvers vegna bæjarmálin?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á bænum
mínum og sá áhugi ásamt hvatningu
víða hafði áhrif á að ég
ákvað að bjóða mig fram í bæjarmálin.
Það eru mörg sóknarfæri fyrir okkur
Skagamenn og því finnst mér vænlegra
að hver leggi sitt af mörk-um í stað þess
að tuða út í horni.
Hvað vil ég gera fyrir bæinn okkar?
Ég vil líka sjá faglegri vinnubrögð
í bæjarstjórn; of mikið virðist
vera um skrýtin vinnubrögð á þeim
vettvangi. Einnig þurfum við að auka lýðræðið
og almenna þátttöku bæjarbúa
í ákvarðanatöku. Það er grundvallaratriði
að kjörnir fulltrúar bjóði sig fram
til þjónustu við bæjarbúa en ekki
til að ná völdum. Það er mikilvægt
að þeir níu sem ná kjöri í
bæjarstjórn Akraness séu allir nýttir.
Gamaldags minni/meirihluta stjórnmál er varla
það sem fólk vill.
Fagleg og gagnsæ vinnubrögð
Það þarf einnig að vinna öll mál
með faglegum og gagnsæjum hætti. Við viljum
opin og heiðarleg vinnubrögð, hætta öllum
tilviljunarkenndum ákvörðunum og vinna að
stefnumótun til framtíðar.
Hér á Akranesi eru fjölmörg tækifæri
og við þurfum saman að nýta þau sem
best til uppbyggingar á okkar góða samfélagi.
> Ingbjörg
bloggar á ingibjorgv.blog.is |
|