FORSÍÐA   OKKAR FÓLK   STEFNAN   Á DÖFINNI   GREINAR   SKRIFSTOFA   MYNDIR   KYNNINGAREFNI  
 
 
 
(1) Sveinn
(2) Hrönn
(3) Ingibjörg
(4) Einar
(5) Gunnhildur
(6) Magnús
(7) Hrund
(8) Guðmundur
(9) Sigrún
 

(10) Björn
(11) Jónína
(12) Guðríður
(13) Bergur
(14) Ingibjörg
(15) Ólafur
(16) Helga
(17) Helgi
(18) Jóhann

 
KOSNINGASKRIFSTOFA (kort)
KYNNINGAREFNI
     
     
     
     
 
 
 
2. sæti
Hrönn Ríkharðsdóttir


Hrönn Ríkharðsdóttir skólastjóri og bæjarfulltrúi situr í bæjarráði. Hún er varaformaður stjórnar SSV og formaður verkefnisstjórnar Vaxtarsamnings Vesturlands. Hrönn er gift Þórði Elíassyni og þau eiga þrjú börn.

Brýnustu verkefni næstu bæjarstjórnar eru fjármál, þjónusta við bæjarbúa og stjórnsýsla. Skuldastaða bæjarsjóðs hefur áhrif til framtíðar og án aðgerða í fjármálum bæjarins verður ekkert gert á næsta kjörtímabili.

Dregið hefur verið úr þjónustu við bæjarbúa. Niðurskurður í leik- og grunnskólum er kominn að sársaukamörkum og opnunartími ýmissa stofnana hefur verið skertur alltof mikið. Á næsta kjörtímabili er brýnt að ná til baka þeim niðurskurði sem orðinn er. Verja þarf þjónustu við bæjarbúa með öllum tiltækum ráðum. Það er markmið Samfylkingarinnar.

Stjórnsýslunni er ábótavant og nýtt skipurit bætir þar ekki úr. Boðleiðir eru ekki skilvirkar og illa gengur að vísa málum í réttan farveg. Við skipuritsbreytingar voru nefndir lagðar niður og áhrif bæjarbúa um leið takmörkuð. Þessu vill Samfylkingin breyta.

Ég skora á Akurnesinga að kjósa Samfylkinguna til forystu í bæjarstjórn!

 

vefstjóri / xs.is / facebook / vídeókynningar / kosningaskrifstofa