FORSÍÐA   OKKAR FÓLK   STEFNAN   Á DÖFINNI   GREINAR   SKRIFSTOFA   MYNDIR   KYNNINGAREFNI  
 
 
 
(1) Sveinn
(2) Hrönn
(3) Ingibjörg
(4) Einar
(5) Gunnhildur
(6) Magnús
(7) Hrund
(8) Guðmundur
(9) Sigrún
 

(10) Björn
(11) Jónína
(12) Guðríður
(13) Bergur
(14) Ingibjörg
(15) Ólafur
(16) Helga
(17) Helgi
(18) Jóhann

 
KOSNINGASKRIFSTOFA (kort)
KYNNINGAREFNI
     
     
     
     
 
 
 
5. sæti
Gunnhildur Björnsdóttir


Gunnhildur er liðlega fertug, fædd í Keflavík en hefur búið á Akranesi óslitið síðan hún flutti hingað með fjölskyldu sinni fimm ára gömul. Hún er gift Pétri Sigurðssyni trésmið og saman eiga þau þrjú börn.

Foreldrar mínir eru Sjöfn Jónsdóttir og Björn Jónsson fyrrverandi sóknarprestur hér í bæ. Börnin mín heita Aron Ýmir, sem er nýorðinn tvítugur, Erla Karitas 18 ára og Birna Sjöfn 12 ára. Einnig tel ég mig eiga mikið í tveimur tengdabörnum mínum. Fjölskyldunni okkar tilheyrir líka papillontíkin Hnáta, mikill vinur og gleðigjafi. Ég er grunnskólakennari að mennt, lauk því námi árið 1999 og hef síðan þá starfað við Grundaskóla. Nú er ég umsjónarkennari í 3. bekk og deildarstjóri yngsta stigs.

Hversvegna bæjarpólitíkin?
Ég vil láta gott af mér leiða í sveitarfélaginu mínu og tel að kraftar mínir gætu nýst til góðra verka. Þetta er krefjandi og spennandi vettvangur sem ég hef mikla trú á að geti styrkt mig sem einstakling og veitt mér tækifæri til að hafa áhrif.

Hvað vil ég gera fyrir bæinn okkar?
Ég vil leggja áherslu á að gera Akranes að fyrirmyndarsamfélagi þar sem stöðugleiki ríkir og velferð fjölskyldunnar er höfð að leiðarljósi. Á þeim erfiðu tímum sem við lifum nú er brýnt að sýna aðhald í fjármálum jafnframt því að standa vörð um þá grunnþjónustu sem opinberir aðilar veita. Ég tel mikilvægt að fagmennska, gagnsæi og traust séu þættir sem unnið sé út frá í allri ákvarðanatöku.
 

vefstjóri / xs.is / facebook / vídeókynningar / kosningaskrifstofa