FORSÍÐA   OKKAR FÓLK   STEFNAN   Á DÖFINNI   GREINAR   SKRIFSTOFA   MYNDIR   KYNNINGAREFNI  
 
 
 
(1) Sveinn
(2) Hrönn
(3) Ingibjörg
(4) Einar
(5) Gunnhildur
(6) Magnús
(7) Hrund
(8) Guðmundur
(9) Sigrún
 

(10) Björn
(11) Jónína
(12) Guðríður
(13) Bergur
(14) Ingibjörg
(15) Ólafur
(16) Helga
(17) Helgi
(18) Jóhann

 
KOSNINGASKRIFSTOFA (kort)
KYNNINGAREFNI
     
     
     
     
 
 
 
4. sæti
Einar Benediktsson


Einar er 41 árs gamall verkamaður, fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann er kvæntur fjögurra barna faðir, kona hans er Sigrún Jóhannesdóttir hjúkrunar-
fræðingur á geðsviði Landspítalans.

Ég flutti frá Skaganum 13 ára en kom heim aftur sumarið 2006 eftir að hafa verið búsettur m.a. í Vestmannaeyjum, Reykjavík og Danmörku.

Hvers vegna bæjarpólitíkin?
Mín skoðun er að í bæjarstjórn eigi að sitja kraftmikill talsmaður verkalýðsins, einstaklingur sem ber hag íbúanna fyrir brjósti fyrst og síðast; maður sem er tilbúinn til að þjóna bæjarbúum en ekki stjórna þeim. Kjörnir fulltrúar eru, eða ættu að vera, þjónar þeirra sem þá kjósa en ekki stjórnendur.

Hvað vil ég gera fyrir bæinn okkar?

Ég tel mjög mikilvægt að samstarfi við íþróttahreyfinguna varðandi uppbyggingu og rekstur íþróttamannvirkja bæjarins verði fundinn farvegur sem sátt er um.

Ég mun aldrei taka þátt í vinnubrögðum eins og þeim sem núverandi meirihluti stendur í varðandi hótelbyggingu á Garðavelli.

Þjónusta bæjarins á ALLTAF að laga sig að þörfum bæjarbúa, ekki öfugt. Þess vegna er nauðsynlegt að hlustað sé eftir því sem íbúarnir vilja, t.d. með þarfagreiningu á hinum ýmsu þjónustuliðum bæjarsins eins og strætó - bæði innanbæjar og utan.

 

vefstjóri / xs.is / facebook / vídeókynningar / kosningaskrifstofa